|
Grunnþjónusta Grunnþjónusta er ætluð notendum sem hafa þörf fyrir almenna þjónustu milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. Innifalinn er aðgangur að þjónustukerfi Hugvits og aðstoð í gegnum það sem nemur allt að einni klukkustund á mánuði, ásamt 10% afslætti af tímagjaldi Hugvits eins og það er á hverjum tíma. Fyrir símtal í neyðarsíma er greidd einn klukkustund..
Bakvaktarþjónusta Bakvaktarþjónusta er ætluð notendum sem þurfa þjónustu utan hefðbundins vinnutíma. Innifalin er Grunnþjónusta ásamt aðgangi að þjónustumönnum (í neyðarsíma) á milli kl. 8:00 og 24:00 virka daga.
Sólarhringsþjónusta Sólarhringsþjónusta er ætluð notendum sem þurfa þjónustu allan sólarhringinn. Innifalin er öll þjónusta Bakvaktarþjónustu ásamt aðgangi að þjónustumönnum (í neyðarsíma) á bakvakt allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Sérþjónusta þjónustuvers Þjónustuver Hugvits býður að auki upp á sérþjónustu sem ætlað er að tryggja rekstraröryggi viðskiptavina enn frekar á sama tíma og rekstrarkostnaður er lágmarkaður.
Þjónustubeiðnir á Netinu Þú getur pantað þjónustu á netinu. Þú einfaldlega fyllir út þjónustubeiðni og hún fer beint inn í þjónustu.
|
|
Öryggisúttekt Sérfræðingar Hugvits bjóða uppá öryggisúttekt á tölvu- umhverfum þar sem farið er yfir uppsett kerfi, þau stillt og komið með ábendingar um atriði sem betur mega fara.
Fyrirbyggjandi eftirlit Fyrirbyggjandi eftirlit er viðbótarþjónusta sem felst í því að í hverjum mánuði eru helstu rekstrarþættir yfirfarnir með tilliti til villna og frávika og gerðar tillögur að úrbótum. Fyrirbyggjandi eftirlit miðast að því reyna að koma auga á vandamál í rekstrarumhverfi áður en þau valda skaða.
Rekstrarþjónusta Hugvit býður fyrirtækjum og stofnunum upp á að sjá um daglegan rekstur GoPro tölvukerfa og tryggja þannig hámarks rekstraröryggi með lágmarks tilkostnaði.
Nýjar útgáfur Með hverri nýrri útgáfu af GoPro vörum eru aðgengilegar upplýsingar um nýjungar og lýsingar á breytingum. Þessar upplýsingar ásamt leið til að senda inn ábendingar varðandi vörur GoPro er hægt að finna á enska vef GoPro hér.
|