Hvað er PRINCE2 ?

PRINCE2 (Project IN Controlled Environments) er alþjóðlega viðurkennt verkefnis-stjórnunarkerfi sem veitir fyrirtækjum og stofnunum staðlaða og skipulega nálgun, við verkefnastjórnun. Kerfið var hannað af bresku tölvu- og fjarskiptastofnuninni CCTA, með tilliti til þarfa fjarskipta- og upplýsingatækni.

Aðferðafræðin var síðar endurbætt af sérfræðingum í verkefnastjórnun, í samvinnu við fjölda opinberra stofnana og fyrirtækja, og aðlögðuð að þörfum opinbera geirans, árið 1996. Nýja útgáfan hlaut nafnið PRINCE2. Í dag nota fjölmörg stórfyrirtæki og stofnanir í Bretlandi PRINCE2 við verkefnastjórnun.  Ríkisstjórnir og fyrirtæki víða um heim hafa einnig tekið upp aðferðafræði PRINCE2 við verkefnastjórnun.

PRINCE2 er vel uppbyggt kerfi skjala sem lýsa ferlum og verklagi til að styðja við verkefnastjórnun, óháð stærð eða atvinnugrein.  Hvert ferli er skilgreint með hliðsjón af markmiðum verkefnisins, virkni, kostnaði og tíma, allt frá frumhugmynd lok til verkloka.  PRINCE2 tryggir þannig góða skjölun verkefna í gegnum allt ferlið á greinargóðan hátt og leitast þannig við að tryggja eftirfylgni við tíma- og kostnaðaráætlun án þess að missa sjónar á gæði afurða.

PRINCE2 lýsir því hvernig verkefnum er skipt upp í meðfærilega, vel skilgreinda áfanga og verkþætti, til að tryggja góða stjórn á framvindu verkefnisins. Hlutverk og ábyrgðarsvið við stjórnun verkefnis eru skilgreind og aðlöguð til að koma á móts við stærð og flækjustig, auk þess að taka tillit til sérstöðu stofnunar eða fyrirtækis.

PRINCE2 verkefni byggja á ávinningi (Business Case), fjárhagslegum og/eða verkefnalegum, réttlætingu verkefnis fyrir stofnun eða fyrirtæki byggða á skuldbindingum og rökstuðningi fyrir afurð eða útkomu.  Ávinningur verkefnisins er endurskoðaður reglulega meðan á verkinu stendur til að tryggja að sett markmið náist þar sem forsendur verkefnis geta breyst á verktíma.
Oft koma margir hópar, með mismunandi bakgrunn og hugmyndir, að verkefnum, viðskiptavinur, birgjar, einn eða fleiri og síðast en ekki síst notandinn.  PRINCE2 er hannað með það fyrir augum að tryggja að öll hugtök séu sameiginleg og skiljanleg öllum hagsmunaaðilum verkefnisins, að þeir tali sama tungumál..


PRINCE2 aðferðafræðin færir fyrirtækjum, stofnunum og stjórnendum aukna möguleika á að stjórna fjárhags- og verkefnaáhættu á skilvirkari hátt í gegnum:

  • Faglegri og skilvirkri stjórnun gegnum allt verkið, frá upphafi til loka
  • Reglulegu eftirliti með virkni samhliða áætlunum og ávinningi verkefnisins
  • Sveigjanlegum viðmið við ákvarðanatöku
    • Markvissri breytingastjórnun
    • Stöðugri frávikagreiningu og meðhöndlun frávika
  • Skýrum boðleiðum á milli verkefnisstjóra, stjórnenda og annarra aðila sem að verkinu koma
    • Á réttum stað og tíma á meðan á verkinu stendur.

Yfirlit yfir aðferðafærði PRINCE2
Þrír megin þættir í PRINCE2 aðferðafræðinni eru: Efnisþættir, ferlar og verklag.

Efnisþættir:

  • Stjórnskipulag (Organisation)
  • Áætlanir (Plans)
  • Stjórntæki (Controls)
  • Áfangar (Stages)
  • Áhætta (Risk)
  • Gæði (Quality)
  • Samstæðustjórnun (Configuration Management
  • Breytingastjórnun (Change Control)

    Ferlar:

    • Undirbúningur verkefnis (SU - Starting up a Project)
    • Yfirumsjón verkefnis (DP - Directing a Project)
    • Upphaf verkefnis (IP - Initiating a Project)
    • Stjórnun áfanga  (CS - Controlling a Stage)
    • Stjórnun áfangamarka (SB -Managing Stage Boundaries)
    • Áætlanagerð (PL - Planning)
    • Stjórnun afhendingar/viðtöku (MP - Managing Product Delivery)
    • Lok verkefnis (CP - Closing a Project)

     

    Verklag:

    • Afurðamiðað verklag (Product Based Planning)
    • Verklag við breytingastjórnun (Change Control Approach) 
    • Verklag við gæðarýni (Quality Review Approach)
    • Verklag við skjölun (Project Filing Techniques) 

    Sjá frekari upplýsingar um PRINCE2 hér:


    Inngangur http://www.spoce.com/P2Introduction.htm
    Vefsvæði með ýmsum upplýsingum http://www.prince2.com/
    Enn annað vefsvæði http://www.prince2.org.uk/
    Official Government vefsvæði http://www.ogc.gov.uk/prince/
    SPOCE vefsvæði http://www.spoce.com  

Til baka