Um Hugvit
|
||
|
Hugvit hf. var stofnað 1993 og hefur frá upphafi einbeitt sér að þróun og dreifingu á skjala- og málastjórnunarkerfi fyrir Lotus Notes. Á þessum árum hefur fyrirtækið vaxið í einn af stærstu birgjum lausna fyrir hópvinnukerfi í skjalavörslu í Evrópu. |
||
| Á síðastliðnum árum hefur Hugvit einnig haslað sér völl sem öflugt fyrirtæki á sviði upplýsinga- og þekkingarstjórnunar sem byggð eru á Microsoft .Net umhverfi og jafnframt IBM portal lausnum.
Aðalvörur fyrirtækisins eru mála - skjalastjórnunar- og samskiptakerfin GoPro fyrir Domino og GoPro fyrir .NET, en nýjustu lausnirnar eru veftækar GoPro Portal lausnir. Hérlendis hefur Hugvit náð mjög góðum árangri og má segja að fyrirtækið hafi náð yfirburðastöðu með GoPro vörur sínar meðal þeirra fyrirtækja og stofnana sem nota hópvinnukerfi. Stjórn Hugvits skipa:
Hugvit og IBM í Danmörku vinna saman að markaðssetningu, sölu og dreifingu vara á Norðurlöndum. Hugvit hefur fengið ýmis verðlaun og tilnefningar, þar má nefna Lotus Euro Beacon Award fyrir The Greatest Impact on Customer Business in Europe 1996, fyrir WebPagePro í flokknum Best Web Business Solution árið 1998 og Best eBusiness solution árið 2000 auk Nýsköpunarverðlauna Rannsóknarráðs og Útflutningsráðs 1997 fyrir frumkvæði í starfsemi, framleiðslu og stjórnun. Hugvit hefur einnig hlotið styrk frá Evrópusambandinu fyrir verkefni byggt á SERVEX verkefninu. Árið 2001 fékk GoPro útflutningsverðlaun forseta Íslands og árið 2008 Lotus viðurkenningu fyrir "best in show" og jafnframt Beacon award verðlaun frá IBM fyrir framsæknustu hugbúnaðarlausn ársins. GoPro og dótturfyrirtækið Hugvit hafa fengið viðurkenningu CreditInfo fyrir "Framúrskarandi Fyrirtæki" árin 2010 og 2011. Hugvit hf. View Hugvit hf in a larger map |
||

.gif)
.gif)
RSS
Segja frá