GoPro Self Service

GoPro Self Service færir viðskipti út á vefinn. Með GoPro Self Service opnast GoPro bakendakerfið út á ''skýið'' í öflugri vefgátt. Möguleikarnir við notkun á GoPro Self Service eru ótakmarkaðir, það má nýta það sem yfirlit og vefþjónustu fyrir viðskiptavini, samvinnukerfi fyrir samstarfsaðila, eða gera starsmönnum kleift að vinna á ''skýinu''. GoPro Self Service styður fjölhæfar aðgangsstýringar svo jafnvel má gera allt þrennt í einu.
GoPro Self Service samþættist öllum útgáfum GoPro bakendakerfisins og getur þar að auki sótt upplýsingar úr öðrum vefþjónustum, eins og Þjóðskrá eða Já.is. Auðvelt er að aðlaga útlit vefgáttarinnar að ímynd fyrirtækisins með WCM kerfi sem er innbyggt í lausnina og með fylgir einnig GoPro Form Creator, sem gerir hverjum sem er kleift að búa til nýjar vefþjónustur fyrir GoPro Self Service, án nokkurrar forritunarkunnáttu.
GoPro Self Service gerir viðskiptavinum og öðrum tengiliðum kleift að öðlast aðgang að gögnum, yfirliti yfir stöðu sinna mála, sækja um nýjar þjónustur eða senda inn upplýsingar, hvar og hvenær sem er. Það eykur þjónustustig en lækkar um leið álag á þjónustudeildir, eykur skilvirkni við úrvinnslu þjónustubeiðna og gerir þitt fyrirtæki sýnilegra.
Hafið samband við Hugvit til að fá frekari upplýsingar eða bókið kynningu með starfsmönnum okkar nú þegar í síma 510 3100.
Frekari Upplýsingar
GoPro Self Service Bæklingur
RSS
Segja frá