VörurHugvit hefur undanfarin sextán ár þróað hugbúnaðarlausnir á sviði skjala- og málastjórnunar fyrir opinbera aðila og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. GoPro er öflug og þrautreynd mála- og skjalastjórnunarlausn sem hefur um árabil verið lykilhugbúnaður hjá fyrirtækjum og opinberum stofnunum um allan heim. GoPro veitir fullkomna yfirsýn yfir stöðu mála, hvar og hvenær sem er, og býður upp á nýja möguleika í rekstrarsparnaði og þjónustu. | ||
| Fyrirtækið býður nú upp á eina öfluga vöru í tveimur gerðum; GoPro fyrir IBM Domino sem samþættist fullkomlega við Lotus Notes umhverfið, og GoPro.net sem byggir á .Net tækni frá Microsoft og samþættist við Microsoft Office, Exchange og SharePoint. GoPro styður auk þess hina gríðarlega öflugu hópvinnulausn IBM Websphere.
| ||
| GoPro fyrir Domino er öflug mála- og skjalastjórnunarlausn sem býður upp á nýja möguleika í rekstrarsparnaði og þjónustu. GoPro veitir fullkomna yfirsýn yfir stöðu mála, hvar og hvenær sem er. | GoPro fyrir .NET er notendavænn hugbúnaður sem er einfaldur í notkun og aðlagast þínu vinnuumhverfi. GoPro gerir fyrirtækjum kleift að mæta kröfum viðskiptavina um betri og hagkvæmari þjónustu jafnframt því að lækka kostnað. | |

