Large font Larger font Normal font
IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Fréttir

26.4.2007
Tveir nemendur við Háskólann á Akureyri hljóta Hugvitsstyrk

Í dag, fimmtudaginn 26. apríl, voru í fyrsta sinn afhentir styrkir frá fyrirtækinu Hugviti til nemenda sem stunda raunvísindanám við Háskólann á Akureyri. Styrkina hlutu Gunnar Harðarson, nemandi í umhverfisfræði og Ingólfur Sigfússon, nemandi í tölvunarfræði. Fengu þeir peningastyrk að upphæð 500.000 krónur hvor. Við úthlutun var litið til  árangurs þeirra í raungreinum í framhaldsskóla sem og árangurs á fyrsta misseri við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

Á síðasta ári gerðu Hugvit hf. og Háskólinn á Akureyri með sér þriggja ára samstarfssamning sem meðal annars felur í sér að Hugvit mun á samningstímanum árlega veita veglega námsstyrki til tveggja námsmanna við skólann sem þykja hafa sýnt framúrskarandi árangur í námi.

Hugvit vill með þessu framlagi efla nám í raungreinum við háskólann, en nægt framboð háskólamenntaðs fólks er ein af frumforsendum góðs árangurs upplýsingatæknifyrirtækja á Íslandi.

Back