Large font Larger font Normal font
IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Fréttir

25.8.2009
Lykilstofnanir og nefndir nýta sér kosti GoPro.net 1.5

Engin lognmolla hefur verið í kringum GoPro.net í sumar. Í byrjun sumars kom útgáfa 1.5 á markað og hefur henni verið vel tekið af notendum.

Nokkrar af lykilstofnunum og nefndum íslensks þjóðfélags nýta sér GoPro.net í starfsemi sinni.  Nýjir notendur bætast stöðugt í hóp viðskiptavina Hugvits og má þar á meðal nefna Sérstakan saksóknara og slitanefndir tveggja banka sem nýta sér kerfið til að halda utan um gögn þeirra fjölmörgu mála og krafna sem verið er að vinna að. Einnig hafa flest sýslumannsembætti landsins innleitt GoPro.net og hefur innleiðing hjá sýslumönnum landsins gengið vel.

Það er ánægjulegt fyrir Hugvit að GoPro skuli koma að góðum notum við að tryggja góða yfirsýn, gegnsæi og skilvirkni í málavinnslu hjá þessum lykilaðilum. 

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum geta haft samband við söludeild Hugvits í síma 510 3100 eða sent tölvupóst á netfangið sales@gopro.net 

Back