Large font Larger font Normal font
IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Fréttir

22.9.2009
Fjölmennt á GoPro notendaráðstefnunni

Fjölmennt var á GoPro notendaráðstefnunni sem haldin var í Turninum í Kópavogi þann 17. september sl.  Kynntar voru nýjungar í GoPro vörulínunni þar sem kynning á GoPro Professional útgáfa 5.0 bar hæst en hún er með aukinni samþættingu við IBM Lotus 8.5 og Lotus Quickr.

Einnig var kynnt ný útgáfa af GoPro Desktop sem eykur samþættingu við póstkerfi og notendaumhverfi notandans og er ný kynslóð af Send2GoPro.

Gestafyrirlesarar komu úr ýmsum áttum og þóttu áhugaverðir.  Þar má helst nefna kynningu frá Rannís þar sem Sigíður Júlíusdóttir fór yfir samþættingu umsóknavefs GoPro við bakendakerfið sem hefur skilað aukinni skilvirkni í starfi Rannís.  Jón Heiðar Ríkharðsson kom frá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík og kynnti m.a. hvernig stofnunin stjórnar umsóknarferlum hjá sér með fösum í GoPro.net. Auk þess kynnti Landsbankinn hvernig GoPro hefur komið að góðum notum við skjalastjórn í breyttu umhverfi til að tryggja skilvirkni og skjölun allra gagna skv. reglum nýja bankans.

Það er von Hugvits að GoPro notendaráðstefnan skili aukinni skilvirkni fyrirtækja og opinberra stofnanna út í samfélagið eins og yfirskrift ráðstefnunnar gaf til kynna. Notendur stendur til boða að hafa samband og fá frekari kynnar á lausnum GoPro ef óskað er.

                                                           

Back