Large font Larger font Normal font
IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Fréttir

16.4.2010
Hugvit styrkir nemendur við Háskólann á Akureyri

Þann 15. apríl afhenti Hugvit styrk til nemanda sem stundar raunvísindanám við Háskólann á Akureyri. Styrkinn hlaut Ketill Gauti Árnason, stúdent í líftækni á viðskipta- og raunvísindasviði, Fékk hann peningastyrk að upphæð 500.000 krónur. Við úthlutun var litið til árangurs hans í raungreinum í framhaldsskóla sem og árangurs á fyrsta misseri við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

Afhendingin fór fram við Háskólann á Akureyri og veitti Jón Alvar Sævarsson markaðstjóri Hugvits styrkinn að viðstöddum rektor háskólans Stefáni B. Sigurðssyni; deildarforseta viðskipta- og raunvísindadeildar og öðrum stjórnendum Háskólans á Akureyri.

Árið 2006 gerðu Hugvit hf. og Háskólinn á Akureyri með sér þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér að Hugvit mun á samningstímanum veita árlega veglega námsstyrki til tveggja námsmanna við skólann sem þykja hafa sýnt framúrskarandi árangur í námi. Styrkurinn að þessu sinni er 7 Hugvitsstyrkurinn er veittur stúdentum við Háskólann á Akureyri.

"Það er okkur sönn ánægja að fá að veita þenna styrkog styðja þannig við Háskólasamfélagið. Það ekki nokkur vafi að menntun er einn að lykilþáttum fyrir samfélag okkar til að ná árangri " Hjá Hugviti starfa um 60 manns og eru um 95 % þeirra með BS eða masters gráðu. Hefur það án efa skilað fyrirtækinu þeim góða árangri sem það hefur náð.


Jón Alvar Sævarsson frá Hugvit, Ketill Gauti Árnason og Stefán B. Sigurðsson rektor HA

 

Frétt frá Háskólanum á Akureyri um afhendingu styrksins.

Back