27.5.2010GoPro Enterprise vel tekið
GoPro Enterprise með Self Service portal viðbót sem var kynnt í fyrra hjá Hugvit hefur verið vel tekið. Bæði einkageirinn og sá opinberi hafa valið GoPro Enterprise til að bæta við þjónustu við viðskiptavini og borgarana.
Á meðal þeirra sem hafa uppfært í nýju útgáfuna er Rinkobing-Skern sveitarfélagið í Danmörku, sem og Garðabær og Reykjanesbær á Íslandi og eru þessi sveitarfélög ánægð með að geta boðið þjónustu á netinu; Ringkobing-Skern þjónar 60.000 manns og í Garðabæ og Reykjanesbæ búa 30.000 manns.
Self Service viðbótin við GoPro, skjala- og málakerfið sem notað er hjá þessum sveitarfélögum, veitir íbúunum þjónustugátt sem er opin 24 tíma sólarhringsins þar sem hægt er að fá upplýsingar, þjónustu og taka þátt. Upplýsingar sem íbúarnir veita bætir ekki einungis notendaviðmótið heldur gefur bæjarstarfsmönnum kost á að veita hnitmiðaðri þjónustu og veita betri upplýsingar.
Back