Um HugvitHugvit hf. var stofnað 1993 og hefur frá upphafi einbeitt sér að þróun og dreifingu á skjalastjórnunar- og vefútgáfukerfi fyrir Lotus Notes. Á þessum árum hefur fyrirtækið vaxið í einn af stærstu birgjum lausna fyrir hópvinnukerfi í skjalavörslu í Evrópu. | ||
Á síðastliðnum árum hefur Hugvit einnig haslað sér völl sem öflugt fyrirtæki á sviði skjalstjórnunarlausna og þekkingarstjórnun sem byggð eru á MS .Net umhverfi og jafnframt IBM portal lausnum. Aðalvörur fyrirtækisins eru mála - skjalastjórnunar- og samskiptakerfin GoPro Professional og GoPro.net, en nýjustu lausnirnar eru veftækar GoPro Portal lausnir. Hérlendis hefur Hugvit náð mjög góðum árangri og má segja að fyrirtækið hafi náð yfirburðastöðu með GoPro vörur sínar meðal þeirra fyrirtækja og stofnana sem nota hópvinnukerfi. Hjá Hugviti starfa um 60 sérfræðingar á sviði sölu, ráðgjafar, kennslu, þjónustu, þróunar og aðlögunar á GoPro Case og GoPro.net.
Hugvit og IBM í Danmörku vinna saman að markaðssetningu, sölu og dreifingu vara á Norðurlöndum. Hugvit hefur fengið nokkur verðlaun og tilnefningar, þar má nefna Lotus Euro Beacon Award fyrir The Greatest Impact on Customer Business in Europe 1996, fyrir WebPagePro í flokknum Best Web Business Solution árið 1998 og Best eBusiness solution árið 2000 auk Nýsköpunarverðlauna Rannsóknarráðs og Útflutningsráðs 1997 fyrir frumkvæði í starfsemi, framleiðslu og stjórnun. Hugvit hefur einnig hlotið styrk frá Evrópusambandinu fyrir verkefni byggt á SERVEX verkefninu. Árið 2001 fékk GoPro útflutningsverðlaun forseta Íslands og árið 2008 Lotus viðurkenningu fyrir "best in show" og jafnframt Beacon award verðlausn frá IBM fyrir framsæknustu hugbúnaðarlausn ársins. Heimilisföng eru:Hugvit hf.
Hugvit hf - Akureyri | ||